Fotbolti.net
26.06.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Markús Máni framlengir við KA

Markús Máni framlengir við KA
Canon

Mynd: KA

Varnarmaðurinn Markús Máni Pétursson hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem gildir út tímabilið 2028.
Markús er tvítugur miðvörður og er uppalinn hjá KA. Hann kom við sögu í sínum fyrstu leikjum síðasta sumar. Hann spilaði alls sjö leiki. Hann hefur verið fastamaður í öftustu línu í sumar.

Hann var í lykilhlutverki hjá 2. flokki árið 2024 sem varð Íslandsmeistari og spilaði í evrópukeppni síðasta sumar.

„Markús er mikill íþróttamaður, hann er sterkur í návígjum, með góðan stökkkraft og fljótur. Þá er hann einnig mikill liðsmaður sem gefur alltaf allt í leikinn. Það er því afar jákvætt að Markús sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og verður heldur betur spennandi að fylgjast áfram með framgöngu hans í gula og bláa búningnum á næstu árum," segir í tilkynningu KA.

Heimild: KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.