Fotbolti.net
26.06.26 - 19:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arnar svekktur út í Solbakken - „Guð minn góður"

Arnar svekktur út í Solbakken - „Guð minn góður"
Canon

Mynd: EPA

Fótboltaáhugamenn voru margir hverjir svekktir þegar þeir sáu byrjunarlið Norðmanna og Frakka í úrslitaleik um toppsætið í I-riðli á HM í kvöld.

Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, gerir tíu breytingar sem þýðir að stjörnurnar Erling Haaland og Martin Ödegaaard byrja á bekknum.
Það var mikil spenna fyrir því að sjá Haaland og Kylian Mbappe, tvo af bestu mönnum heims mætast. Arnar Gunnlaugsson og Albert Brynjar Ingason tjáðu sig um byrjunarlið Noregs í umfjöllun RÚV fyrir leikinn.

„Ég hef ekki forsendurnar. Fyrst og fremst er þetta sorglegt sem knattspyrnuáhugamaður, ekki að gagnrýna Solbakken. Ég var búinn að sjá fyrir mér, aðalsöguþráðurinn var Noregur á móti Frakklandi, hvar stendur Noregur? Eru þeir eins góðir og allir eru að tala um," sagði Arnar.

„Svo er undirsöguþráðurinn Haaland á móti Mbappe og Olise á móti Ödegaard. Ég var spenntur fyrir því. Ég er eigingjarn þegar ég segi að ég sé svekktur. Svo verður að koma í ljós, guð minn góður hvaða gagnrýni hann fær ef þeir detta út í 32-liða úrslitum. Skriðþunginn er eitt mesta vopn sem íþróttamaður hefur. Norðmenn eru með hann núna, eru þeir að fara missa hann? Spurðu mig aftur eftir eina viku."

„Ég skil ákvörðunina að hvíla Haaland. Þeir verða að hafa hann heilan, hann er búinn að leggja fáránlega mikið á sig, búinn að hlaupa mikið. Hann er búinn að skora út frá pressu og koma sér í færi. Sáum það í fyrsta leiknum að hann naut þess að vera kominn á heimsmeistaramótið. Þegar Haaland er að pressa eru einhver dýrahljóð," sagði Albert.

„Að vinna þennan riðil færðu Svíþjóð. Noregur á móti Svíþjóð, ég hefði haldið að það væri risa gulrót. Ég myndi ekki vilja mæta Fílabeinsströndinni, mér finnst þeir hafa litið betur út heldur en Svíar."

Helga Margrét Höskuldsdóttir spurði Arnar hvort Haaland sætti sig við að byrja á bekknum. Hann hefur skorað fjögur mörk og vill væntanlega vinna gullskóinn.

„Ég trúi því ekki. Maður hefur horft á þessa City þætti og hann er nagandi neglurnar alla daga sem spilar ekki leiki. Hann virkar á mann þessi týpa sem eltist við mörk hjá félagsliðum og landsliðum. Hann er loksins kominn á stóra sviðið og mun ekki þola það ef Mbappe gerir tvö mörk og hann er varamaður," sagði Arnar.

„Albert kom með frábærar klippur þar sem hann er mikill liðsmaður en ég get lofað þér því að hann er mikill egóisti. Þú nærð ekki svona langt á þínum íþróttaferli nema vera egóisti fram í fingurgóma. Ég held að þetta hafi verið mjög erfið sala hjá þjálfara Noregs."
Arnar svekktur út í Solbakken - „Guð minn góður"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.