Fotbolti.net
08.06.05 - 10:09
Magnús Már Einarsson

Bogelund til Gladbach (Staðfest)

Bogelund til Gladbach (Staðfest)
Canon
Danski hægri bakvörðurinn Kasper Bogelund hefur gengið til liðs við Borussia Monchengladbach. Bogelund hefur gert þriggja ára samning við Gladbach en hann kom til liðsins frá PSV og er kaupverðið talið vera um 1 milljón evra.
Hinn 24 ára gamli Bogelund hefur verið í 6 ár PSV en hann vildi yfirgefa liðið eftir að hafa færst neðar í goggunarröðinni hjá því. England og Þýskaland voru draumaáfangastaðir Bogelund og því getur hann verið ánægður með þessi vistaskipti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.