Fotbolti.net
08.06.25 - 15:56
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið U21 gegn Kólumbíu: Ólafur Ingi gerir átta breytingar

Tómas Orri er í byrjunarliðinu í fyrsta sinn

Tómas Orri er í byrjunarliðinu í fyrsta sinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari U21 árs landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir vináttulandsleikinn gegn Kólumbíu sem hefst klukkan 16:00 á Petrosport-vellinum í Kaíró í Egyptalandi í dag.
Íslenska liðið gerði markalaust jafntefli við U20 ára landslið Brasilíu á dögunum og mun leika seinni landsleik sinn gegn Kólumbíumönnum á sama velli í dag.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 15:00 en var seinkað um klukkutíma vegna hita.

Hlynur Freyr Karlsson er fyrirliði í dag og þá er Tómas Orri í byrjunarliðinu í fyrsta sinn.

Alls gerir Ólafur Ingi átta breytingar frá markalausa jafnteflinu gegn Brasilíu en liðið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Byrjunarlið Íslands:
12. Halldór Snær Georgsson (M)
6. Jóhannes Kristinn Bjarnason
14. Hlynur Freyr Karlsson (F)
15. Baldvin Þór Berndsen
22. Daníel Freyr Kristjánsson
21. Helgi Fróði Ingason
16. Tómas Orri Róbertsson
8. Haukur Andri Haraldsson
23. Ágúst Orri Þorsteinsson
9. Benoný Breki Andrésson
11. Hinrik Harðarson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.