Stórveldin Juventus og Atlético Madrid eru í viðræðum um tvo leikmenn sem gætu skipt á milli félaganna.
Þau eru annars vegar að ræða um Nicolás Iván González, betur þekktur sem Nico González, og hins vegar um Alexander Sörloth, sem eru báðir á leið á HM í sumar.
Atlético vill kaupa González úr röðum Juventus en hann er 28 ára kantmaður sem á 50 landsleiki að baki fyrir ríkjandi heimsmeistara Argentínu.
González lék á láni hjá Atlético á nýliðinni leiktíð og kom við sögu í 37 leikjum í öllum keppnum.
Kantmaðurinn á þrjú ár eftir af samningi við Juve en vill ekki snúa aftur til félagsins. Talið er að Juve sé reiðubúið til að selja hann fyrir 25 til 30 milljónir evra, sem er aðeins lægri upphæð en félagið borgaði til að kaupa hann úr röðum Fiorentina.
Það er svipuð upphæð og Atlético vill fá fyrir norska framherjann Sörloth, sem er 30 ára og með tvö ár eftir af samningi.
Sörloth skoraði 20 mörk í 54 leikjum með Atlético á tímabilinu og hefur í heildina skorað 44 sinnum í 107 leikjum frá komu sinni til félagsins.
07.06.2026 16:06
Spalletti ekki spenntur fyrir Alberti


