HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada hefst á fimmtudag og fer úrslitaleikurinn fram 19. júlí. Það er ljóst að það verður mjög heitt á meðan mótinu stendur.
Leikmaður sem þekkir það að spila í Bandaríkjunum yfir sumarið er Nökkvi Þeyr Þórisson sem lék með St. Louis City SC í amerísku MLS deildinni 2023-24. Hann ræddi við Fótbolta.net um helgina.
Nökkvi, sem er í dag leikmaður Sparta Rotterdam í Hollandi, er uppalinn Dalvíkingur og var við hæfi að ræða við hann á Dalvíkurvelli.

„Það mun klárlega hafa mikil áhrif, ef þú ert Evrópubúi og ert allt í einu að fara spila í 90% raka og 38 gráðum - endurheimtin eftir einn sprett er aðeins erfiðari heldur en þegar þú ert að spila í 15 gráðum og fullkomnum raka."
„Ég held að leikirnir verði aðeins hægari. En svo getur vel verið að menn finni einhverjar aðferðir til þess að vinna úr því. Ég býst við því að þetta muni hjálpa suður-amerísku liðunum," segir Nökkvi.
Hvernig fannst þér að spila á þessum árstíma í Bandaríkjunum?
„Það var sjokking (hrikalegt). Maður venst því en þú getur ekki vanist því á einu HM, maður venst því aldrei fullkomlega. Ég held það sé enginn líkami sem geti vanist því að taka þessi háákefðarhlaup í þessum aðstæðum."
Növkki telur að Portúgal með þá Bruno Fernandes, Vitinha og Joao Neves á miðjunni geti gert flotta hluti en nefnir einnig Brasilíu sem Carlo Ancelotti stýrir.
Ekki er spilað í St. Louis á HM en spilað verður í Kansas City sem er í tæplega fjögurra klukkustunda fjarlægð frá St. Louis.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!