Heimsmeistaramótið er handan við hornið og á næstu dögum mun Fótbolti.net taka saman yfirferð yfir helstu leikmenn mótsins eftir stöðum. Eins og alltaf fyrir stórmót er spennandi að skoða hvaða leikmenn gætu skarað fram úr þegar mest á reynir og hvaða nöfn munu setja mark sitt á keppnina.
Við hefjum leik með markvörðunum sem koma til með að spila stórt hlutverk á mótinu í sumar.
Við hefjum leik með markvörðunum sem koma til með að spila stórt hlutverk á mótinu í sumar.
Fótbolti.net hefur farið yfir hópana og tekið saman lista yfir tíu bestu markverðina fyrir mótið. Það er þó athyglisvert að efsti maður á listanum gæti lent í því að horfa á stærstu leiki mótsins frá bekknum. Þrátt fyrir stórkostlegt tímabil með Arsenal þá verður David Raya væntanlega á bekknum fyrir Unai Simon í sumar.
Næstu daga munum við svo halda áfram yfirferðinni og skoða bestu bakverði, miðverði og aðrar stöður áður en flautað verður til leiks á HM.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



