U19 landslið kvenna mætti Svíþjóð í síðasta leiknum á æfingamóti ytra og höfðu heimastelpur betur, með einu marki gegn engu.
Svíar ljúka því mótinu með sex stig eftir sigra gegn Íslandi og Noregi, á meðan Stelpurnar okkar enda með þrjú stig og þær norsku stigalausar.
Stelpurnar lögðu Noreg að velli í fjörugum leik áður en þær töpuðu naumlega í dag.
06.06.2026 18:22
U19 kvenna vann Noreg í æfingaleik




