U19 ára landslið kvenna vann Noreg, 3-2, í æfingaleik í Svíþjóð í dag.
Birgitta Rún Finnbogadóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum.
Þetta var fyrri æfingaleikur Íslands í ferðinni en á mánudag munu stelpurnar spila gegn heimakonum í Svíþjóð.
Sá leikur hefst klukkan 16:30 á íslenskum tíma og verður hann í beinu streymi. Hlekkur á streymi kemur á Facebook síðu KSÍ á leikdegi.



