Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Undirbúa þriðja tilboðið í Van Hecke
Mynd: EPA
Tottenham er í viðræðum við Brighton um félagaskipti fyrir varnarmanninn Jan Paul van Hecke.

Van Hecke vill skipta yfir til Tottenham og hefur Roberto De Zerbi miklar mætur á hollenska landsliðsmanninum.

Van Hecke er 26 ára miðvörður sem á aðeins eitt ár eftir af samningi, en Brighton er búið að hafna tveimur tilboðum frá Tottenham sem er að undirbúa þriðja tilboðið.

De Zerbi og Van Hecke þekkjast vel eftir að Ítalinn þjálfaði Brighton í tæp tvö ár frá 2022 til 2024. Hann gaf Van Hecke sín fyrstu tækifæri með aðalliðinu og vann Hollendingurinn sér inn byrjunarliðssæti undir stjórn De Zerbi.

Van Hecke hefur verið hjá Brighton í sex ár og er tilbúinn til að skipta um andrúmsloft.

Talið er að Brighton vilji fá um 50 milljónir punda fyrir miðvörðinn þó að hann eigi ekki nema eitt ár eftir af samningi.

   07.06.2026 11:30
Hafna öðru tilboði frá Tottenham

Slapp
banner
banner