Fotbolti.net
08.07.05 - 04:27

Maciej Zurawski til Celtic (Staðfest)

Strachan heldur áfram að versla

Strachan heldur áfram að versla

Canon
Maciej Zurawski er genginn til liðs við Skosku risanna í Glasgow Celtic. Zurawski kemur frá Wisla Krakow í heimalandi sínu, Póllandi og þurfti að bíða nokkuð lengi eftir því að fá að fara til Skotlands. Hann hafði þegar samþykkt samnnig Celtic áður en liðin komust að samkomulagi um 2 milljón punda kaupverðið.
"Við erum hæstánægðir með að Maciej hafi skrifað undir" sagði Gordon Strachan þjálfari liðsins. "Tölfræði hans yfir skoruð mörk er ótrúleg" bætti hann við glaður í bragði.

Liðin tvö höfðu karpað um kaupverðið í nokkuð langan tíma þar til 2 milljónir punda voru loksins samþykktar. Tyrkeska liðið Trabzonspor hafði einnig áhuga á Zurawski sem skoraði í undankeppni HM fyrir Pólverja gegn Englandi, Wales og Norður-Írlandi á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.