Fotbolti.net
08.07.05 - 14:26
Arnar Geir Halldórsson

Pascal Chimbonda til Wigan (Staðfest)

Kominn í ensku Úrvalsdeildina

Kominn í ensku Úrvalsdeildina

Canon
Nýliðarnir í ensku Úrvalsdeildinni, Wigan hafa fest kaup á franska varnarmanninum Pascal Chimbonda sem lék með Bastia í efstu deild Frakklands á seinustu leiktíð en Bastia féll úr efstu deildinni í vor. Pascal sem er 26 ára gekk til liðs við Wigan en West Ham og Marseille voru einnig talin á eftir honum auk þess höfðu fleiri lið áhuga á kappanum.
Chimbonda gerði þriggja ára samning við nýliðana og var hann himinlifandi með samninginn.

,,Þetta er verulega spennandi fyrir mig og er ég mjög ánægður með að allt sé frágengið" sagði hann við heimasíðu Wigan. Áfram hélt hann: ,,Það voru fleiri tilboð á borðinu en Wigan hreif mig og það tækifæri að fá að spila í ensku Úrvalsdeildinni var of gott til að hafna"

,,Ég hefði getað haldið áfram í Frakklandi meðal þeirra bestu en á þessu stigi ferilsins tel ég mig tilbúinn fyrir ný verkefni hjá Wigan og er þetta frábært tækifæri fyrir mig að fá að spila gegn bestu leikmönnum heims" bætti hann við.

Paul Jewell stjóri Wigan hefur gefið það út að hann vilji sterka og hraða varnarmenn í hjarta varnarinnar og trúir því að Chimbonda sé maðurinn í það.

,,Pascal er frábær leikmaður og erum við verulega ánægðir með að hafa náð samningum við hann. Við sigruðum samkeppni við Marseille um kaup á honum og hann hefur það sem ég vil í vörninni, styrk, hraða og fjölhæfni."

,,Hann passar akkúrat þeim leikstíl sem ég vil að liðið mitt spili" sagði Jewell og bætti svo við að lokum: ,,Ég hef trú á að hann muni eiga eftir að vera í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum liðsins."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.