08.07.05 - 15:57
Magnús Már Einarsson
Ambrose til Charlton (Staðfest)




Charlton hefur keypt miðjumanninn efnilega Darren Ambrose frá Newcastle fyrir óuppgefna upphæð. Ambrose sem er 21 árs kom til Newcastle frá Ipswich árið 2004 en hann hefur gert fjögurra ára samning við Charlton.
Ambrose gekk erfiðlega að ná byrjunarliðssæti hjá Newcastle en hann lék 29 af 56 leikjum sínum fyrir Newcastle eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Ambrose er annar leikmaðurinn sem fer frá Newcastle í sumar en Craig Bellamy fór til Blackburn í gær og þá er ekki ólíklegt að Lee Bowyer yfirgefi liðið á næstunni.
Ambrose er annar leikmaðurinn sem fer frá Newcastle í sumar en Craig Bellamy fór til Blackburn í gær og þá er ekki ólíklegt að Lee Bowyer yfirgefi liðið á næstunni.
