Þórður: Varamennirnir skiptu sköpum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Undirritaður vill byrja á að afsaka hversu skjálfhentur hann er. Þetta er meðfætt og auk þess var kalt.
Þórður Jensson, þjálfari FH, var ánægður með stig á JÁVERK-Vellinum. Lið hans gerði 2-2 jafntefli við Selfoss eftir fjörugann lokakafla en markalaust var bróður part leiksins.
,,Ánægður með stigið, hefðu þeir flautað af nokkrum mínútum fyrr hefði ég auðvitað verið svekktur með að hafa tapað þessu niður. Úr því sem komið var er ég mjög ánægður með stigið og vinnuframlag leikmanna bara mjög gott.\" sagði Þórður
Markalaust var þegar aðeins korter var eftir af venjulegum leiktíma og segir Þórður að varamennirnir hafi skipt sköpum fyrir leik þeirra.
,,Okkar megin komu varamennirnir mjög sterkir inn. Settu báðar mark, sem er bara frábært. Hlutur sem okkur hefur vantað í sumar og keyrðum þetta svolítið í gang og settu lagið.\" sagði Þórður
Hafdís Erla Gunnarsdóttir stóð á milli stanganna í sínum fyrsta leik í Pepsi deildinni og segist Þórður vera ánægður með hennar framlag.
,,Hafdís er klárlega framtíðarmarkvörður FH, hún er ung, rétt 17 ára. Mjög ánægður með hennar framlag, gat ekkert gert svo sem í þessum mörkum en hún er leikmaður sem mun vaxa og dafna í FH.\" sagði Þórður.
FH mætir Þór/KA í næsta leik á Akureyri og segir Þórður að liðið stefni að því að krækja í stig þar sömuleiðis.
,,Eitt stig er stig og í baráttunni sem við erum í í neðri hlutanum skiptir þetta hrikalega miklu máli. Stig er stig og ég er ánægður með það.\"

Ekki náðist viðtal við Gunnar Borgþórsson