Brasilíumaðurinn Paulinho er aftur mættur til Kína eftir eitt ár hjá Barcelona.
Guangzhou Evergrande hefur fengið miðjumanninn aftur en hann var hjá liðinu frá árinu 2015-2017 þar sem hann vann kínversku deildina tvisvar. Svo vann Paulinho spænsku deildina með Barcelona í ár.
Í þetta skiptið verður Paulinho þó á láni hjá Guangzhou Evergrande.
„Gæði deildarinnar hafa orðið meiri með hverju árinu og þróun ungra og efnilegra leikmanna er góð. Ég valdi að koma til baka í kínversku deildina og vona að vinna fleiri titla fyrir Guangzhou og stuðningsmenn," sagði Brasilíumaðurinn við komuna.
Athugasemdir