17.11.26 - 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Jesus gerir fjórar breytingar eftir tapið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í efstu deildum Þjóðadeildarinnar í kvöld og hafa öll byrjunarliðin verið tilkynnt. Í A-deildinni eru tveir leikir á dagskrá, annar í Danmörku og hinn í Wales.
Danir taka á móti frændum sínum frá Noregi í úrslitaleik um 2. sæti riðilsins á meðan botnlið Wales fær Portúgal í heimsókn og þarf á sigri að halda til að falla ekki niður um deild.
Brian Riemer landsliðsþjálfari Dana gerir aðeins eina breytingu á liðinu sem skellti Portúgal óvænt á útivelli um helgina þar sem Rasmus Kristensen kemur inn í byrjunarliðið fyrir Alexander Bah.
Ståle Solbakken þjálfari Noregs gerir fjórar breytingar á liðinu sem lagði Wales að velli um helgina. Alexander Sörloth, Patrick Berg, Örjan Nyland og Leo Östigård koma inn í byrjunarliðið.
Wales byrjar þá með sjö úrvalsdeildarleikmenn á heimavelli gegn Portúgal. Þar má meðal annars finna Harry Wilson, Daniel James og David Brooks eftir að Craig Bellamy gerði sex breytingar frá tapinu gegn Noregi.
Úrvalsdeildarleikmennirnir Lewis Koumas, Ethan Ampadu, Brennan Johnson og Neco Williams eru meðal þeirra sem detta úr byrjunarliðinu. Williams er meiddur og Ampadu í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.
Jorge Jesus þjálfari Portúgal gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu eftir tapið óvænta á heimavelli gegn Dönum. Francisco Trincao, Joao Neves, António Silva og Joao Cancelo koma inn í byrjunarliðið fyrir Joao Félix, Rúben Neves, Alberto Costa og Rúben Dias.
Hér fyrir neðan má einnig sjá byrjunarliðið sem Heimir Hallgrímsson stillir upp fyrir Írland í B-deildinni ásamt tilraunakenndu byrjunarliði Svía sem eru þegar búnir að tryggja toppsætið í sínum riðli.
Þess má geta að Robert Lewandowski byrjar á bekknum hjá Póllandi á meðan Liverpool-mennirnir Dominik Szoboszlai og Milos Kerkez eru í byrjunarliðinu í úrslitaleik sem Ungverjaland spilar gegn Norður-Írlandi.
Danmörk: Hermansen, Kristensen, Provstgaard, Andersen, Mæhle, Höjbjerg, Hjulmand, Damsgaard, Isaksen, Daramy, Höjlund
Noregur: Nyland, Ryerson, Ajer, Östigard, Heggem, Berg, Berge, Ödegaard, Nusa, Sörloth, Haaland
Wales: Ward, Roberts, Rodon, Davies, Dasilva, Sheehan, Brooks, James, Wilson, Thomas, Colwill
Portúgal: D.Costa, Dalot, A.Silva, Veiga, Cancelo, J.Neves, Vitinha, Fernandes, Trincao, Neto, Ramos
Írland: Kelleher, O'Shea, Egan, Scales, Abankwah, Manning, Molumby, Moylan, Azaz, Parrott, Idah
Svíþjóð: Tornqvist, Beijmo, Lagerbielke, Smith, Stroud, Bernhardsson, Larsson, Karlström, Njie, Ayari, Gyökeres