Fotbolti.net
17.11.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Franska deildin

Yfirgefur Swansea til að taka við Strasbourg

Yfirgefur Swansea til að taka við Strasbourg
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski þjálfarinn Vítor Matos ætlar að yfirgefa Swansea til að taka við franska félaginu Strasbourg.
Fyrrum þjálfari Liverpool að taka við Swansea
TENGT EFNI

Fyrrum þjálfari Liverpool að taka við Swansea

Matos er aðeins 38 ára gamall og hefur gert mjög góða hluti á einu ári við stjórnvölinn hjá Svönunum. Hann var valinn stjóri mánaðarins í Championship deildinni í ágúst og er Swansea í toppbaráttunni með 26 stig eftir 15 umferðir þrátt fyrir fjögur töp í síðustu fimm leikjum.

BBC og Sky Sports eru meðal fjölmiðla sem greina frá því að Matos hafi kvatt leikmenn Swansea á æfingu í dag og mun opinber tilkynning berast von bráðar. Strasbourg á eftir að ná samkomulagi við Swansea um kaupverð fyrir Matos, sem virðist staðráðinn í því að grípa tækifærið. Talið er að Svanirnir gætu sætt sig við um 5 milljónir punda fyrir þjálfarann.

Matos mun taka við af Hugo Oliveira hjá Strasbourg, eftir að liðið náði aðeins í 10 stig úr 10 deildarleikjum undir hans stjórn.

Matos var partur af þjálfarateymi Jürgen Klopp hjá Liverpool og starfaði svo í teymi Pepijn Lijnders hjá RB Salzburg áður en hann fékk sitt fyrsta starf sem aðalþjálfari hjá Marítimo í heimalandinu.
Yfirgefur Swansea til að taka við Strasbourg
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.