Fotbolti.net
17.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Verið frábært að sjá þróunina á honum og Freysa"

Viktor Freyr Sigurðsson kom í Fram frá Leikni eftir tímabilið 2024.

Viktor Freyr Sigurðsson kom í Fram frá Leikni eftir tímabilið 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Sigurðsson hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og varð í ár lykilmaður í liði Fram sem endaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar. Hann kom einnig öflugur inn í U21 landsliðið og byrjaði báða leikina í umspilinu gegn Grikkjum.

Sænski reynsluboltinn Simon Tibbling ræddi við Fótbolta.net og hann var spurður út í hvort einhver leikmaður hjá Fram hefði staðið upp úr á tíma sínum hjá félaginu.
„Ég hef séð Freysa gera hluti sem ég hef aldrei getað gert á ævinni“
TENGT EFNI

„Ég hef séð Freysa gera hluti sem ég hef aldrei getað gert á ævinni“

„Fram á auðvitað góða leikmenn og mjög margir af þeim hafa bætt sig mjög mikið frá því að ég kom til félagsins fyrir tveimur árum. Allir hafa bætt sig mikið, en ef ég þarf að velja eitthvað þá hefur þróunin á Freysa verið frábær. Frá því að ég hitti liðið á Spáni fyrir tveimur árum og svo núna, ég er mjög hrifinn af því hvernig hann hefur þróast."

„Sömuleiðis Viktor (Freyr Sigurðsson) í markinu. Þegar ég kom var hann varamarkvörður og maður sá að hann var mjög hæfileikaríkur. Ég hef séð hann þróast og hann hefur á köflum verið besti markvörður deildarinnar og bjargað okkur margoft. Það hefur verið frábært að sjá þróunina á honum og Freysa."

„Allir, meira að segja Kennie (Chopart), sem er elsti leikmaðurinn í liðinu, hafa þróast. En bætingin hjá Freysa og Viktori er sérstök, það hefur verið frábært að sjá hversu mikið þeir hafa bætt sig á vellinum og frábært að hafa verið með þeim á þeim tíma,"
segir Tibbling.
Freyr Sigurðsson kom frá Sindra á Höfn fyrir nokkrum árum og er orðinn lykilmaður í liði Fram.

Freyr Sigurðsson kom frá Sindra á Höfn fyrir nokkrum árum og er orðinn lykilmaður í liði Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.