17.11.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Estevao fór þegar hann var spurður út í PSG

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Estevao hefur fengið lítinn spiltíma með Chelsea á tímabilinu og hefur aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
Vinícius setti þrennu á tólf mínútum
Estevao lék 87 mínútur og stóð sig vel í 2-0 sigri á heimavelli gegn Manchester United í lok október. Hann fékk svo að spila seinni hálfleikinn í tapi gegn Sunderland í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
Hann var í byrjunarliði brasilíska landsliðsins í báðum vináttuleikjunum í landsleikjahlénu og eru ýmsir orðrómar á sveimi um framtíð táningsins.
Estevao er 19 ára gamall og eru ýmsir miðlar sem segja tvöfalda Evrópumeistara Paris Saint-Germain hafa áhuga á honum. Hann er þó með meira en 6 og hálft ár eftir af samningi sínum við Chelsea.
Estevao svaraði spurningum eftir stórsigur Brasilíu gegn Singapúr í dag og gekk í burtu þegar fréttakona spurði hann út í PSG. Táningurinn skoraði eitt og lagði upp tvö í sjö marka sigri.

ESTÊVÃO NO PSG? ????????? Com poucos minutos no Chelsea, o atacante da Seleção Brasileira deu uma resposta enigmática quando perguntado sobre uma possível transferência ao Paris Saint-Germain... E aí, fã de esportes, seria uma boa? ????
— SportsCenter Brasil (@SportsCenterBR) November 17, 2026
#FutebolNaESPN #Estêvão #Chelsea #PSG https://t.co/dPQGdVNXWh

Mynd: EPA
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 19 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |