Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 08. júlí 2020 23:08
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Öruggt hjá KV - Elliði og Reynir S. skildu jöfn
Ingólfur Sigurðsson skoraði fyrir KV en þetta var annað markið hans í deildinni
Ingólfur Sigurðsson skoraði fyrir KV en þetta var annað markið hans í deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KV fagnaði góðum 3-0 sigri á KFG í 3. deild karla í kvöld en fimm leikir fóru fram í deildinni.

KV hefur farið afar vel af stað á þessu tímabili en liðið vann þriðja sigurinn af fjórum mögulegum í deildinni.

Ingólfur Sigurðsson kom KV á bragðið á 62. mínútu áður en Einar Már Þórisson bætti við öðru tíu mínútum síðar. Gauti Þorvarðarson gerði svo út um leikinn sex mínútum fyrir leikslok og sigur KV aldrei í hættu.

Elliði og Reynir Sandgerði gerðu þá 2-2 jafntefli. Árbæingar komust tveimur mörkum yfir í leiknum en Reynismenn jöfnuðu með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla.

Tindastóll vann þá Álftanes 2-1. Stólarnir komust yfir með marki frá Isaac Owusu Afriyie áður en Gunnar Orri Aðalsteinsson jafnaði metin. Luke Rae skoraði sigurmarkið fyrir Tindastól þegar hálftími var eftir.

Einhetji vann Hött/Hugin 2-1. Todor Hristov skoraði sigurmark gestanna á 87. mínútu. Þessi ágæti leikmaður gerði 11 mörk í 22 leikjum fyrir Einherja á síðasta tímabili en þetta var fyrsti leikur hans á þessu tímabili.

Sindri vann Ægi 4-2 á Sindravöllum. Kristinn Justiniano Snjólfsson gerði fyrsta markið áður en Jón Reynir Sveinsson kom boltanum í eigið net stuttu síðar. Kristinn gerði svo þriðja markið áður en Ásgrímur Þór Bjarnason minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks.

Cristopher Moises Rolin gerði fjórða mark Sindra áður en Goran Kotgozarac minnkaði muninn aftur í tvö mörk. Lengra komust Ægismenn ekki og lokatölur 4-2.

Úrslit og markaskorarar:

KFG 0 - 3 KV
0-1 Ingólfur Sigurðsson ('62 )
0-2 Einar Már Þórisson ('72, víti )
0-3 Gauti Þorvarðarson ('84 )

Höttur/Huginn 1 - 2 Einherji
1-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('10 )
1-1 Recoe Rashan Martin ('77 )
1-2 Todor Hristov ('87 )

Álftanes 1 - 2 Tindastóll
0-1 Isaac Owusu Afriyie ('39 )
1-1 Gunnar Orri Aðalsteinsson ('50 )
1-2 Luke Rae ('61 )

Sindri 4 - 2 Ægir
1-0 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('1 )
2-0 Jón Reynir Sveinsson ('13, sjálfsmark )
3-0 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('41 )
3-1 Ásgrímur Þór Bjarnason ('43 )
4-1 Cristofer Moises Rolin ('56 )
4-2 Goran Potgozarac ('65 )

Elliði 2 - 2 Reynir S.
1-0 Óðinn Arnarsson ('29, víti )
2-0 Pétur Óskarsson ('63 )
2-1 Magnús Magnússon ('70 )
2-2 Óðinn Jóhannsson ('75 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner