Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. júlí 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Solskjær blæs á sögusagnir um Ake
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefu blásið á sögusagnir þess efnis að hann hafi áhuga á Nathan Ake varnarmanni Bournemouth.

Solskjær og Ake sáust spjalla saman eftir 5-2 sigur United á Bournemouth um helgina.

Varalesarar þóttust lesa út að Solskjær hefði sagt við Ake: „Við þurfum örvfættan miðvörð, svo haltu áfram."

Solskjær segist hins vegar ekki vera á höttunum á eftir Hollendingnum.

„Ég er með fimm miðverði. Ég veit ekki hvaðan þetta kom. Við erum í góðu lagi," sagði Solskjær.
Athugasemdir
banner
banner