Fotbolti.net
08.07.26 - 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Barcelona leggur fram tilboð í Adeyemi

Ensk úrvalsdeildarfélög eru einnig áhugasöm.

Ensk úrvalsdeildarfélög eru einnig áhugasöm.

Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona eru búnir að leggja fram opinbert tilboð í þýska sóknarleikmanninn Karim Adeyemi, sem er á mála hjá Borussia Dortmund.
Adeyemi er 24 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund. Hann kom með beinum hætti að 16 mörkum í 39 leikjum á síðustu leiktíð og gæti Dortmund neyðst til að selja þennan fjölhæfa kantmann.

Talið er að Barcelona hafi lagt fram 30 til 40 milljón evru tilboð, en Dortmund gæti viljað 50 til 60 milljónir til ða selja leikmanninn. Hann yrði þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Barca í sumar á eftir Anthony Gordon og Hamza Abdelkarim.

Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greina frá þessu. Adeyemi er með ellefu leiki að baki fyrir Þýskaland en var ekki valinn í hóp fyrir HM.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.