Fotbolti.net
08.07.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Króatía og Portúgal staðfesta þjálfarabreytingar

Zlatko Dalic er hættur sem þjálfari Króatíu.

Zlatko Dalic er hættur sem þjálfari Króatíu.

Canon

Mynd: EPA

Króatíska fótboltasambandið hefur staðfest að Zlatko Dalic sé hættur sem landsliðsþjálfari eftir níu ár með stjórnartaumana. Dalic ákvað sjálfur að segja þetta gott eftir að liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum HM.

Það eru nýir tímar hjá króatíska landsliðinu framundan en andlit liðsins og fyrirliði, Luka Modric (40), hefur væntanlega spilað sitt síðasta stórmót.

Slaven Bilic, fyrrum stjóri West Ham, hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastarf Króata.
Bilic gæti tekið aftur við króatíska landsliðinu
TENGT EFNI

Bilic gæti tekið aftur við króatíska landsliðinu

Þá hefur portúgalska fótboltasambandið staðfest að Roberto Martínez sé hættur sem landsliðsþjálfari eftir tap gegn Spáni í 16-liða úrslitum. Martínez fékk harða gagnrýni fyrir að byrja alltaf með Cristiano Ronaldo.

Jorge Jesus er talinn líklegastur til að taka við keflinu af Martínez, en hann var síðast hjá Al Nassr í Sádi-Arabíu. Þar hjálpaði hann Cristiano Ronaldo að vinna deildartitilinn í fyrsta sinn áður en hann lét af störfum. Jesus hefur einnig stýrt liðum á borð við Benfica, Sporting, Al Hilal og Fenerbahce.
Roberto Martínez.

Roberto Martínez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.