08.08.26 - 17:55
Andri Stefánsson
Rúnar: Við ætlum að jafna þá að stigum
Auglýsing

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál Sigmundsson, þjálfara Gróttu, eftir 1-1 jafntefli við Þrótt í Lengjudeildinni í dag.
„Mér fannst þetta sanngjarnt jafntefli. Þetta var ágætis leikur sem þróaðist þannig að mér fannst við betri í fyrri hálfleik og fengum fleiri færi en Þróttur. Í seinni hálfleik tók Þróttur aðeins yfir, skapaði sér ágætis færi og kom sér betur inn í leikinn. Þegar upp var staðið finnst mér 1-1 sanngjörn niðurstaða,“ sagði Rúnar eftir leik.
Rúnar var spurður hvað hefði helst vantað upp á hjá hans liði til að taka öll þrjú stigin.
„Færanýtingin. Í fyrri hálfleik hefðum við getað komist í 2-0 og jafnvel 3-0. Það hefði breytt leiknum og líklega klárað hann. Þeir fengu líka sín færi, þannig að ég get ekki verið annað en sáttur með að hafa tekið fjögur stig af Þrótti í sumar.“
Liðið er nú ósigrað í sex leikjum og var Rúnar spurður hvernig honum liði með það.
„Mér líður mjög vel með það. Við erum á góðu róli, gerum hlutina vel og leggjum okkur fram. Það er mikill karakter í liðinu og ég er mjög ánægður með hvernig það er að skila sér.“
Rúnar var einnig spurður út í leikinn gegn Njarðvík í næstu umferð.
„Hann leggst vel í mig. Þeir unnu góðan sigur á Vestra og ef við vinnum þá á fimmtudaginn jöfnum við þá að stigum. Það er það sem við ætlum að gera.“
Að lokum var Rúnar spurður hvort vindurinn hefði haft áhrif á leikinn.
„Já, mér fannst það. Það var mjög stífur vindur sem hafði áhrif á leikinn. Það voru margir langir boltar og boltinn var mikið á lofti. Ég held að það hafi haft einhver áhrif á leikinn. En þegar upp var staðið fannst mér 1-1 sanngjörn niðurstaða.“