Fotbolti.net
08.08.26 - 17:31
Andri Stefánsson

Venni svekktur: Við áttum að vinna þetta

Auglýsing
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir 1-1 jafntefli við Gróttu í Lengjudeildinni í dag.
„Ég er svolítið svekktur að hafa ekki náð í öll þrjú stigin,“ sagði Venni eftir leik.

Venni var spurður út í umdeilda vítaspyrnu Gróttu en leikmenn hans töldu að vítaskyttan hefði snert boltann tvisvar.

„Reglan er reglan. Mér finnst að dómararnir eigi að skoða svona atvik. Mér sýndist boltinn vera snertur tvisvar í vítaspyrnunni. Reglurnar eru skýrar og ef leikmaður snertir boltann tvisvar á að dæma óbeina aukaspyrnu.“

Þá var Venni spurður hvað hefði helst vantað upp á hjá hans liði til að ná öllum þremur stigunum.

„Í seinni hálfleik vantaði bara að koma boltanum yfir línuna. Við vorum með tíu til tólf skot og fín færi til að skora. Kannski vorum við aðeins of lengi í gang og festumst í baráttunni. Grótta byrjaði leikinn af krafti og var sterkari og grimmari í fyrri hálfleik. Það var mikill munur á fyrri og seinni hálfleik. Í seinni hálfleik fannst mér við mun betri og allir lögðu sig fram.“

Þrátt fyrir jafnteflið taldi Venni að sitt lið hefði átt skilið meira úr leiknum.

„Mér líður eins og við hefðum átt að vinna þetta. Mér fannst við vera með yfirhöndina nánast allan seinni hálfleikinn. Skotin dundu á marki Gróttu, við áttum fullt af fyrirgjöfum og opnunum. Þess vegna er svekkjandi að ná ekki sigrinum.“

Að lokum var Venni spurður út í næsta leik gegn Grindavík.

„Hann leggst mjög vel í mig. Það verður útileikur á grasvelli. Það var töluvert rok í dag sem hafði áhrif á flæði leiksins. Ég vona að það verði gott veður í Grindavík svo bæði lið geti spilað sinn besta fótbolta. Grindvíkingar hafa bætt vel við sig. Þótt þeir hafi tapað í gær eru þeir með sterkt lið og það verður krefjandi verkefni.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.