Fotbolti.net
08.08.26 - 22:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Newcastle vann tíu leikmenn Valencia - Antony og Alex Scott reknir af velli

Newcastle vann tíu leikmenn Valencia - Antony og Alex Scott reknir af velli
Canon

Mynd: EPA

Newcastle lagði Valencia á Mestalla í æfingaleik í kvöld. Filip Ugrinic kom Valencia yfir snemma leiks.

Jose Gaya, varnarmaður Valencia, var rekinn af velli eftir rúmlega hálftíma leik eftir ljótt brot á Anthony Elanga sem var borinn af velli í kjölfarið. Hann virðist hins vegar í lagi þar sem hann var kominn á fætur mjög fljótlega.
Yoane Wissa kom inn á í hálfleik og skoraði tvennu og tryggði Newcastle endurkomusigur.

Real Betis og Bournemouth áttust við þar sem leikar enduðu 2-2. Marcus Tavernier kom Bourneouth yfir. Það voru læti undir lok fyrri hálfleiks sem endaði með því að Antony, leikmaður Betis, og Alex Scott, leikmaður Bournemouth, fengu rautt spjald.

Isco jafnaði metin fyrir Betis. Evanilson kom Bournemouth aftur yfir en Pablo Fornals tryggði Betis jafntefli.

Carlos Espi, nýjasti leikmaður Real Madrid, tryggði liðinu 2-1 sigur á Ferencvaros. Hinn 19 ára gamli Mario Rivas kom liðinu yfir.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.