Fotbolti.net
08.08.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Mourinho herðir á agareglum

Mourinho ræðir við leikmenn sína.

Mourinho ræðir við leikmenn sína.

Canon

Mynd: EPA

Síðasta tímabil var erfitt fyrir Real Madrid. Það kom enginn titill í hús og fréttir af liðinu voru aðallega varðandi hegðunarvandamál í klefanum og stjörnustæla leikmanna.

Jose Mourinho tók við stjórnartaumunum í sumar og hann hefur þegar kynnt nýjar reglur sem gilda fyrir leikmannahópinn. Spænska blaðið AS nefnir þrjár breytingar sem Mourinho hefur gert.
Leikmenn fá nákvæmar leiðbeiningar frá næringarfræðingi félagsins um hvað þeir eigi að borða á hverjum degi. Áður var næringafræðingurinn aðeins til ráðgjafar en sér nú um að skipuleggja máltíðirnar.

Leikmenn eiga að mæta klukkustund fyrir æfingu, ef þeir mæta of seint fá þeir ekki að æfa með liðsfélögum sínum heldur fara í líkamsræktarsalinn. Áður voru aðeins sektargreiðslur fyrir að mæta of seint.

Þá hefur Mourinho skipað að allir leikmenn sem séu að jafna sig af meiðslum fari í gegnum endurhæfingarferlið á æfingasvæði félagsins. Hann hefur bannað meðferðir utan félagsins, allt skuli samræmt í gegnum starfsliðið.

Real Madrid, sem endaði tólf situm á eftir keppinautunum í Barcelona í titilbaráttu síðasta tímabils, byrjar nýtt ímabil á útileik gegn Espanyol 22. ágúst.
Agi er upphaf árangurs.

Agi er upphaf árangurs.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.