08.08.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Diljá skoraði aftur tvennu fyrir Brann

Diljá Ýr skoraði aftur tvennu og kom Brann áfram

Mynd: Brann

Íslenska landsliðskonan Diljá Ýr Zomers átti stórleik og skoraði tvennu þegar Brann vann PAOK, 3-2, og tryggði sér sæti í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar.
Diljá Ýr hefur verið sjóðandi heit með Brann í síðustu leikjum. Hún skoraði tvö mörk gegn Mitrovica í síðustu umferð forkeppninnar og hélt uppteknum hætti með annarri frábærri frammistöðu í dag.
Brann lenti undir á elleftu mínútu en Diljá svaraði aðeins tólf mínútum síðar og jafnaði metin.
Hún var aftur á ferðinni þegar sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Diljá fór af velli þegar fimm mínútur voru eftir en Brann gerði endanlega út um leikinn með marki Neu Lehtola í uppbótartíma. PAOK náði inn sárabótarmarki úr vítaspyrnu örfáum mínútum síðar en það kom of seint.
Brann verður því í pottinum þegar dregið verður í þriðju umferð forkeppninnar á þriðjudag.