08.08.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Amanda á skotskónum í kærkomnum sigri


Mynd: Molde


Mynd: Molde

Amanda Andradóttir var á skotskónum í 2-1 sigri Molde gegn Bodö/Glimt í norsku deildinni í dag.
Bodö var með 1-0 forystu í hálfleik en Amanda jafnaði metin á 81. mínútu og sigurmarkið kom þremur mínútum síðar.
Bodö var með 1-0 forystu í hálfleik en Amanda jafnaði metin á 81. mínútu og sigurmarkið kom þremur mínútum síðar.
Molde er með 14 stig í 8. sæti eftir 12 umferðir. Liðið hafði aðeins nælt í eitt stig úr síðustu þremur leikjum fyrir leik dagsins.
Amanda hefur komið að þremur mörkum í síðustu þremur leikjum. Hún hefur skorað tvö og lagt upp þrjú í sex leikjum á tímabilinu.
Amanda hefur komið að þremur mörkum í síðustu þremur leikjum. Hún hefur skorað tvö og lagt upp þrjú í sex leikjum á tímabilinu.
