Fotbolti.net
08.08.26 - 17:49
Alexander Tonini

Elmar Atli: Erum að missa af lestinni

Auglýsing
Elmar Atli Garðarsson fyrirliðia Vestra

Elmar Atli Garðarsson fyrirliðia Vestra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Vestri fékk sannkallaða draumabyrjun þegar Johannes Selvén kom liðinu í 1-0 strax á upphafsmínútu leiks. Breki Þór fékk síðan dauðafæri til að tvöfalda forystuna og lengst af í fyrri hálfleik voru gestirnir með góða stjórn á leiknum. Njarðvíkingum tókst að minnka muninn rétt fyrir hálfleik og í þeim seinni sá Vestri aldrei til sólar.

„Byrjum leikinn af krafti og komumst snemma yfir, sanngjarnt fannst mér og góð orka í byrjun. Svo sofnum við aðeins á verðinum í lok fyrri hálfleiks, fáum á okkur þetta jöfnunarmark á vondum tíma. Mér leið samt vel í hálfleik og við ætluðum að halda áfram að keyra á þá. Svo fáum við típískt vindmark á okkur og róðurinn var þungur eftir það.“
Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 1 Vestri
Vörn Vestra hefur verið í talsverðu basli í síðustu leikjum og hafa fengið á sig 17 mörk í síðustu fjórum umferðum Lengjudeildarinnar.

Hvað telur Elmar að þurfi að breyta til að laga varnarleikinn?

„Það er augljóslega að þétta okkur svolítið og gera hlutina betur varnarlega. Við höfum verið að fá allt of mikið af klaufamörkum á okkur og hreinlega bara að gefa mörk.“

Hver er skýringin á því að varnarleikurinn sem var þéttur í fyrri hálfleik hrynur í þeim seinni?

„Bara slökkvum á okkur eitt augnablik og þeir (Njarðvík) eiga góðan bolta í gegnum hjarta varnarinnar og klára það vel. Við erum að gera andstæðinum okkar full auðvelt fyrir með því að gefa svona mörk.“

Er markmiðið núna ekki bara að einblína alfarið á deildina og reyna að ná umspilssæti?

„Jú algjörlega og nú er þetta orðið þannig að hver leikur telur rosalega mikið og við förum bara að missa af lestinni ef við förum ekki að gera eitthvað og þurfum að rífa okkur í gang.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.