Fotbolti.net
08.08.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hafrún Rakel tryggði Bröndby sæti í Evrópubikarnum

Hafrún Rakel tryggði Bröndby sæti í Evrópubikarnum
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kvennaboltinn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir gulltryggði danska félaginu Bröndby sæti í Evrópubikarnum eftir sigur á Slavia Prag í kvöld.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Hafrún kom inn á sem varamaður eftir hálftíma leik.
Slavia klikkaði á einni spyrnu í vítaspyrnukeppninni en Bröndby skoraði úr öllum fimm og Hafrún skoraði úr síðustu spyrnunni og tryggði liðinu sigurinn.

Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Hammarby sem tapaði gegn Juventus í forkeppni Meistaradeildarinnar 3-1 eftir framlengdan leik. Tapið þýðir að liðið er á leið í Evrópubikarinn.

Þá var Hlín Eiríksdóttir í byrjunarliði Malmö sem tapaði 2-0 gegn Frankfurt og er einnig á leið í Evrópubikarinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.