08.08.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aftur skoraði Bjarki þrennu og nú á 11 mínútum

Mynd: Dortmund

Mynd: Dortmund
Bjarki Hrafn Garðarsson hefur byrjað af ótrúlegum krafti með U19 liði Dortmund í Þýskalandi.
Bjarki Hrafn (2010) gekk til liðs við Dortmund frá Stjörnunni í síðasta mánuði. Hann skoraði þrennu í 4-3 tapi liðsins gegn Holstein Kiel í bikarnum um síðustu helgi.

Hann hélt áfram uppteknum hætti og skoraði aðra þrennu í 4-2 sigri á Oberhausen í frumraun sinni í deildinni í dag. Hann skoraði þrjú mörk á ellefu mínútna kafla.
Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri Norrköping gegn Brage í næst efstu deild í Svíþjóð. Norrköping er á toppnum með 38 stig eftir 18 umferðir.
Willum Þór WIllumsson kom inn á sem varamaður í 2-1 tapi NEC Nijmegen í fyrstu umferð hollensku deildarinnar gegn Telstar. Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem vann Willem II 4-1. Stefán Ingi var tekinn af velli eftir klukkutíma leik.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliðinu og Ari Sigurpálsson kom inn á þegar Elfsborg vann 1-0 sigur á Mjallby í efstu deild í Svíþjóð. Elfsborg er í 6. sæti með 24 stig eftir 16 umferðir.
Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa sem tapaði 1-0 gegn Deportivo La Coruna í æfingaleik.

Bjarki Gardarsson with another hat-trick for Dortmund U19, this time on his league debut. https://t.co/g0MAGFw4VW
— Daxo (@daxooo_) August 8, 2026