Fotbolti.net
08.08.26 - 14:51
Brynjar Ingi Erluson

Diomande flýgur til Englands í kvöld

Diomande flýgur til Englands í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er loksins að ganga frá samkomulagi við portúgalska félagið Sporting um kaup á varnarmanninum Ousmane Diomande, en þetta segir David Ornstein á X í dag.
Viðræður félaganna hafa dregist á langinn og sigldu um tíma í strand en samkomulag er í augsýn.

Nottingham Forest greiðir 34,3 milljónir punda fyrir Fílabeinsstrendinginn sem heldur til Englands í kvöld. Þar gengst hann undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir fimm ára samning.

Diomande er 22 ára gamall miðvörður sem hóf atvinnumannaferilinn hjá Midtjylland í Danmörku. Hann gekk til liðs við Sporting árið 2022 og varð tvívegis portúgalskur meistari með félaginu.

Hann verður þriðji leikmaðurinn sem Forest fær í sumar. Áður höfðu Xaver Schlager, sem kom á frjálsri sölu frá Leipzig, og Gustavo Sa frá Famalicao gengið til liðs við félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.