08.08.26 - 10:42
Brynjar Ingi Erluson
Man City gæti fengið Enzo í stað Rodri - Arsenal og Man Utd berjast um framherja

Enzo til Man City?

Mynd: EPA

Julian Alvarez er á óskalista Arsenal

Mynd: EPA

Enzo til Man City?

Mynd: EPA

Enzo Maresca og félagar í Man City eru að skoða Enzo Fernandez, Arsenal og Man Utd horfa til Ítalíu og þá er Liverpool komið í viðræður við Paris Saint-Germain um Bradley Barcola. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Manchester City er að skoða það að fá argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez (25) frá Chelsea í stað Rodri (30), sem færist nær Spánarmeisturum Barcelona. (Independent)
Arsenal gæti skráð sig í baráttuna við Manchester United um Pio Esposito (21), framherja Inter. Hann er verðmetinn á 73 milljónir punda. (Sun)
Liverpool hefur hafið viðræður við Paris Saint-Germain um franska vængmanninn Bradley Barcola (23), en enn er mikið bil á milli félaganna í verðmati á leikmanninum. (Sky Sports)
Arsenal hefur sett þrjá leikmenn á óskalistann eftir að félagið missti af Vinicius Junior (26), sem framlengdi við Real Madrid. Það eru Barcola, Julian Alvarez (26) hjá Atlético Madríd og Iliman Ndiaye (26) hjá Everton. (Independent)
Newcastle hefur gert Manchester United ljóst að Lewis Hall (21) sé ekki til sölu í sumar eftir að fyrirspurn United var hafnað. (Sky Sports)
Liðsfélagar Ezri Konsa (28) hjá Aston Villa búast við því að enski landsliðsmaðurinn gangi til liðs við Arsenal. (Mail)
Arsenal hefur áhuga á Cristian Romero (28), fyrirliða Tottenham, en Tottenham neitar að selja hann til erkifjendanna í Norður-Lundúnum. (Mirror)
Newcastle hefur áhuga á danska miðjumanninum Pierre-Emile Hojbjerg (31) hjá Marseille. (Mail)
Napoli íhugar að fá franska miðvörðinn Benoit Badiashile (25) að láni frá Chelsea. (Sky Sports)
Napoli er einnig að skoða brasilíska framherjann Gabriel Jesus (29) hjá Arsenal. (Calciomercato)
Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, mun á næstunni taka ákvörðun um framtíð enska vængmannsins Jacob Murphy (31), en Everton er meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á honum. (Football Insider)