Cristiano Ronaldo er gríðarlega öflugur markaskorari, engar nýjar fréttir þar. Í gær skoraði hann bæði mörk Juventus í 2-1 sigri á Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
2-1 sigur dugði Juventus ekki til því Lyon vann fyrri leikinn í febrúar og fer áfram á útivallarmarki skoruðu.
2-1 sigur dugði Juventus ekki til því Lyon vann fyrri leikinn í febrúar og fer áfram á útivallarmarki skoruðu.
Juventus hefur verið í smá brasi í undanförnum leikjum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Liðið hefur einungis skorað sjö mörk í síðustu sex leikum sínum þar. Öll sjö mörkin hefur Cristiano skorað, Portúgalinn er 35 ára gamall.
Í gær skoraði Ronaldo fyrst mark úr vítaspyrnu og svo með langskoti sem markvörður Lyon réði ekki við þrátt fyrir að ná hendi á boltann.
In their past six #UCL knockout matches, #Juventus have scored seven goals - ALL of them scored by Ronaldo
— Daniella Matar (@DaniellaMatar) August 7, 2020
Athugasemdir