Svava Rós Guðmundsdóttir var á skotskónum fyrir Kristianstad þegar liðið vann flottan 3-0 útisigur á Linköping í sænsku úrvalsdeildinni.
Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad og Sif Atladóttir er einnig á mála hjá félaginu, en hún er ekki að spila þar sem hún er ólétt.
Kristianstad er eftir sigurinn í dag með 15 stig í fjórða sætinu. Liðið hefur verið á ágætu skriði að undanförnu.
Guðrún Arnardóttir lék þá allan leikinn í hjarta varnarinnar fyrir Djurgården í 0-1 tapi gegn Örebro. Djurgården er í tíunda sæti með átta stig, jafnmörg stig og Vaxjö sem er í fallsæti.
Athugasemdir