Fotbolti.net
08.08.22 - 18:23
Brynjar Ingi Erluson

Godfrey frá í þrjá mánuði - Mina fer í skoðun í vikunni

Ben Godfrey var borinn af velli gegn Chelsea

Ben Godfrey var borinn af velli gegn Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Enski varnarmaðurinn Ben Godfrey verður frá næstu þrjá mánuði eftir að hann fótbrotnaði í 1-0 tapi Everton gegn Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.
Godfrey meiddist á 10. mínútu gegn Chelsea eftir að hann fleygði sér í tæklingu er Kai Havertz reyndi skot að marki en hann festi sig í grasinu og brotnaði við það.

Varnarmaðurinn var borinn af velli á börum og fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð en Everton hefur staðfest að hann verði frá í að minnsta kosti þrjá mánuði.

Kólumbíski miðvörðurinn Yerry Mina fór einnig meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea en hann er að glíma við meiðsli í ökkla. Ekki er ljóst hvað hann verður lengi frá en hann mun fara í frekari skoðanir á næstu dögum.

Everton er að ganga frá samningum við Conor Coady, varnarmann Wolves, en hann kemur á láni út tímabilið og á félagið svo möguleika á að kaupa hann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.