Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
   sun 08. september 2019 22:22
Oddur Stefánsson
Óskar Hrafn: Við vorum í gjafastuði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru heldur betur óvænt úrslit í kvöld þegar Grótta og Afturelding mættust á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Afturelding sigruðu óvænt 0 - 5.

Óskar Hrafn þjálfari Gróttu var ekki sáttur með úrslitin eftir leik enda hefur Grótta ekki tapað leik síðan 24. maí.

„Þegar þú tapar 5 - 0 þá snýst þetta ekkert um hvort hlutirnir séu sanngjarnir eða ekki, því ef þú færð á þig fimm mörk þá vinnur þú ekki leik."

„Við vorum í gjafastuði og við gáfum þeim mörk, þeir tóku það sem við buðum þeim. Þeir kláruðu jólamatinn sinn áður en við bárum á borð fyrir þá."

Grótta hefur verið mikið í umræðunni eftir gott gengi í sumar. Grótta hefur mikið treyst á unga leikmenn.

„Við komum kannski ekki með rétt spennustig inn í leikinn og kannski voru menn farnir að trúa því að það væri hægt að labba inn í Pepsi Max deildina."

„Sá sem ætlar að fara nota það sem afsökun að liðið sé ungt, við höfum ekki talað um að liðið sé ungt þegar við vorum að vinna leiki og síðan gera það þegar við töpum."

Grótta leikur næst við Njarðvík og þarf að koma sér aftur á sigurbraut til að halda í vonina um að komast upp í Pepsi Max deild karla.
Slapp
banner