Serbneski þjálfarinn Sinisa Mihajlovic má snúa aftur á æfingasvæði Bologna eftir að hafa fengið neikvæða niðurstöðu úr tveimur Covid-19 prófum.
Mihajlovic greindist með kórónuveiruna 23. ágúst og hefur verið í sóttkví síðan. Hann var sem betur fer einkennalaus en hann hefur einnig verið að glíma við hvítblæði í rúmt ár.
Mihajlovic var í áhættuhópi fyrir Covid vegna hvítblæðisins og því afar heppinn að vera einkennalaus.
Mihajlovic missti af síðasta undirbúningstímabili Bologna vegna hvítblæðisins og var smeykur að það sama myndi henda í ár vegna kórónuveirunnar. Hann fór í geislameðferð og beinmergsígræðslu á síðustu leiktíð.
Bologna er búið að staðfesta að Mihajlovic mun stýra æfingu liðsins á morgun.
Athugasemdir