Fotbolti.net
08.09.22 - 06:00
Aksentije Milisic
Ítalski boltinn

Á toppi deildarinnar í fyrsta sinn í sögunni - „Við reynum að láta það endast”

Á toppi deildarinnar í fyrsta sinn í sögunni - „Við reynum að láta það endast”
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Atalanta hefur farið mjög vel af stað í Serie A deildinni á Ítalíu en eftir fimm umferðir er liðið eitt á toppi deildarinnar.

Atalanta vann nýliðana í Monza um síðastliðna helgi og er liðið nú með tveimur stigum meira heldur en Napoli og AC Milan sem komast í næstu sætum fyrir neðan.

Gian Gasperini, þjálfari Atalanta, segist ætla reyna að halda liðinu í efsta sætinu eins lengi og mögulegt er.

„Þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Atalanta er eitt á toppi deildarinnar,” sagði Gasperini.

„Félagið hefur aldrei verið eitt og sér á toppnum, strákarnir eiga skilið mikið hrós, þetta er skemmtilegt fyrir okkur og stuðningsmenn okkar. Við ætlum að reyna að láta það endast og vera á toppnum eins lengi og hægt er.”

„Stuðningsmennirnir mega njóta þess að vera á toppnum. Við munum halda áfram að leggja hart að okkur fyrir komandi leiki.”

Atalanta tekur ekki þátt í neinni Evrópukeppni í ár en næsti leikur liðsins er um helgina þegar það mætir Cremonese á sunnudaginn kemur.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.