fim 08. október 2020 11:48
Magnús Már Einarsson
ÍSÍ biður um hlé á íþróttum á höfuðborgarsvæðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóttvarnarlæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa sent tilmæli til íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu eru þar beðin um að gera hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum frá deginum í dag til 19. október. Jafnframt eru þau beðin um að fresta keppnisferðum út á land. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

KSÍ frestaði í gær öllum leikjum sem áttu að fara fram næstu vikuna en nú er ennþá meiri óvissa komin um framhald Íslandsmótsins.

Í fréttatilkynningu sóttvarnarlæknis og ríkislögreglustjóra er komið inn á fleiri atriði sem tilmæli eru um hér á höfuðborgarsvæðinu.

Tilmælin eru eftirfarandi
Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ítreka tilmæli sín vegna aukins fjöldi smita einkum á höfuðborgarsvæðinu, vegna Covid-19 síðustu daga og aukið hafa líkur á veldisvexti í faraldrinum.

Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga. Tilmælin eru;
- Hvetjum alla á höfuðborgarsvæðinu til að vera eins mikið heimavið og kostur er.
- Ekki vera á ferðinni til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema nauðsyn sé til.
- Verjum viðkvæma hópa og takmörkum heimsóknir til einstaklinga í áhættuhópum eins og hægt er.
- Takmörkun fjölda í búðum –einn fari að versla frá heimili ef kostur er.
- Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir viðburðum á höfuðborgarsvæðinu fresti þeim
- Klúbbar, kórar, hlaupahópar, hjólahópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starfsemi sinni.
- Allir staðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem almenningur á erindi herði allar sínar sóttvarnaraðgerðir, takmarki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótthreinsað hendur við innganga, sótthreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjarlægðarmörk
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
- Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu fresti keppnisferðum út á land.
- Allir sem finni fyrir hinum minnstu einkennum haldi sig heima, fari í sýnatöku og líti á að þeir séu í einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku liggi fyrir.
- Allir á höfuðborgarsvæðinu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sérstaklega vel að sér næstu vikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner