08.10.26 - 18:46
Elvar Geir Magnússon
Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
KSÍ hefur rætt við leikmennina

Frá höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Starfslið íslenska landsliðsins fundaði vegna agabrota nokkurra leikmanna liðsins í nýliðnum landsleikjaglugga. Agabrotin áttu sér stað í miðjum glugganum.
„Við vitum af þessu. Það hefur verið rætt við leikmennina og hópinn, og leikmannahópurinn hefur líka rætt saman. Af okkar hálfu er málið afgreitt og það verða engir eftirmálar," segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, við Fótbolta.net.

Fótbolti.net óskaði eftir viðbrögðum frá KSÍ eftir að hávær orðrómur fór af stað um áfengisneyslu leikmanna í landsliðsverkefninu.
Ísland lék fjóra landsleiki í þessum óvenjulega langa glugga og sem lauk með jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn á þriðjudaginn.
„Fyllerí landsliðsmanna eftir leikinn gegn Búlgaríu verður krufið í þaula í Þungavigtinni í fyrramálið," skrifaði hlaðvarpsstjórnandinn Kristján Óli Sigurðsson á samfélagsmiðlinum X í dag. Leikurinn gegn Búlgaríu sem fram fór hér á landi var þriðji leikurinn í glugganum og fór fram síðasta laugardag.

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og framkvæmdastjórinn Eysteinn Pétur Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð