Fotbolti.net
08.10.26 - 14:35
Elvar Geir Magnússon

Brobbey ekki með um helgina en meiðslin eru minniháttar

Brian Brobbey.

Brian Brobbey.

Canon

Mynd: EPA

Brian Brobbey sóknarmaður Sunderland mun missa af úrvalsdeildarleiknum gegn Brighton á laugardag vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleik með Hollandi gegn Þýskalandi í glugganum.

Brobbey skoraði þrennu í 5-3 tapi Sunderland gegn Manchester City rétt fyrir gluggann.
Brobbey meiddist aftan í læri í 1-1 jafntefli Hollands og Þýskalands en meiðslin eru ekki alvarleg og mögulega verður hann kominn aftur á fulla ferð í næstu viku.

„Við tökum ekki áhættu með hann um helgina en það eru gleðifréttir að meiðslin séu minniháttar," segir Regis Le Bris, stjóri Sunderland.

Þá er það að frétta af meiðslalista Sunderland að varnarmaðurinn Dan Ballard verður frá næstu vikurnar. Sunderland hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og er í fjórtánda sæti.

LEIKIR HELGARINNAR:

laugardagur 10. október
11:30 Arsenal - Leeds
14:00 Aston Villa - Brentford
14:00 Chelsea - Bournemouth
14:00 Ipswich Town - Fulham
14:00 Sunderland - Brighton
16:30 Man Utd - Tottenham

sunnudagur 11. október
13:00 Crystal Palace - Nott. Forest
13:00 Hull City - Everton
15:30 Liverpool - Man City

mánudagur 12. október
19:00 Coventry - Newcastle

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.