08.10.26 - 13:57
Elvar Geir Magnússon
Skoða persónuleika leikmanna í þaula áður en þeir eru keyptir

Tony Bloom, eigandi Brighton.

Mynd: EPA

Amex leikvangurinn, heimavöllur Brighton.

Mynd: EPA

Jan Paul van Hecke.

Mynd: EPA

Malick Yalcouye lengst til vinstri.

Mynd: EPA

Tony Bloom, eigandi Brighton.

Mynd: EPA
Brighton & Hove Albion er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er eitt markahæsta lið Evrópuboltans. Félagið er frábærlega rekið og hefur gert ótrúlega góða hluti á leikmannamarkaðnum.
Brighton er annað af tveimur félögum deildarinnar (hitt er Everton) sem hafa komið út í plús í leikmannaviðskiptum undanfarin fimm ár. Félagið er í fararbroddi þegar kemur að því að finna leikmenn, fá þá til að passa inn í liðið og selja þá á mun hærra verði á réttum tíma.
Þessi stefna hefur svínvirkað hjá Brighton ár eftir ár.
„Við erum með mjög skýra hugmyndafræði um hvernig við getum verið samkeppnishæfir í einni erfiðustu deild í heimi," segir Mike Cave, íþróttastjóri Brighton, við breska ríkisútvarpið.

Greiningar og gögn
Brighton notar greiningar og gögn sem aðalaðferð sína til að skoða leikmenn og þjálfara í gegnum greiningarfyrirtækið Jamestown Analytics sem er í eigu Tony Bloom, eiganda félagsins.
„Það hjálpar okkur að finna hæfileikaríka leikmenn víðsvegar að úr heiminum á mjög skilvirkan hátt. Það gerir okkur kleift að bregðast hratt við á markaðnum," segir Cave.
En þetta snýst ekki bara um gögnin.
„Það sem skiptir jafn miklu máli eru upplýsingarnar sem við reynum að safna um persónuleika leikmannsins, bakgrunn hans og hvernig hann passar inn í okkar umhverfi. Það eru ekki allir leikmenn sem henta Brighton og Brighton hentar ekki öllum leikmönnum. Við leggjum mikla vinnu í að reyna að skilja einstaklinginn, manneskjuna. Við erum að vinna með fólk og margt sem þarf að skoða í ákvarðanatökum okkar."
„Við viljum stuðla að því að leikmönnum líði eins og þetta sé heimili þeirra, að þeir verði besta útgáfan af sjálfum sér á vellinum. Við viljum að leikmenn komi til Brighton og dafni og njóti borgarinnar og félagsins,“ segir Cave.
Lánsmarkaðurinn vel notaður
Brighton lánar marga leikmenn innanlands og til Evrópu til að hjálpa til við þróun þeirra. Á hverju tímabili síðustu ár hafa yfir 20 leikmenn verið lánaðir frá félaginu.
„Við höfum haft mjög afkastamikið og farsælt lánakerfi. Við gætum fundið leikmenn sem hafa mikla möguleika en við teljum ekki alveg tilbúna fyrir ensku úrvalsdeildina. Við teljum að við getum boðið upp á eina bestu þróunarleiðina," segir Cave.
Eitt nýjasta dæmið um þetta er hollenski varnarmaðurinn Jan Paul van Hecke sem Brighton seldi til Tottenham fyrir 52 milljónir punda í sumar. Hann var lánaður til Heerenveen og til Blackburn áður en hann lék 131 leik fyrir Brighton og var svo seldur.
Á þessu tímabili má einnig finna dæmi um að stefnan beri ávöxt.
Malick Yalcouye sem var keyptur á sex milljónir punda frá Gautaborg hefur verið lánaður síðustu tvö tímabil, fyrst til Sturm Graz í Austurríki og svo til Swansea í Championship-deildinni. Þessi tvítugi leikmaður er núna kominn með tvö mörk í fyrstu fimm leikjunum. Félagið hefur sýnt það með leikmönnum á borð við Alexis Mac Allister og Carlos Baleba, sem voru seldir til Liverpool og Manchester United, að Brighton virkar frábærlega sem stökkpallur fyrir metnaðarfulla leikmenn.
„Lykilatriði er að geta sýnt ungum leikmönnum að við höfum öfluga áætlun sem vonandi leiðir til þess að þeir geti spilað með aðalliði okkar,“ segir Cave.

Heimild: BBC