22.11.26 - 12:44
Brynjar Ingi Erluson
Ferdinand gagnrýnir framkomu Bayern - „Hlýtur að vera nógu erfitt fyrir Jamal nú þegar“

Jamal Musiala

Mynd: EPA

Karl-Heinz Rummenigge er einn þeirra sem hafa ýtt á Musiala í gegnum fjölmiðla

Mynd: EPA

Rio Ferdinand er ekki hrifinn af framkomu Bæjara

Mynd: EPA

Jamal Musiala

Mynd: EPA
Stjórnarmenn þýska stórveldisins Bayern München hafa sætt harðri gagnrýni fyrir ummæli sín um Jamal Musiala og heilsufarsvandamál hans. Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, segir framkomuna setja svartan blett á félagið og að hún sé alls ekki í anda Bayern.

TENGT EFNI
FIFPro gagnrýnir orðræðu FC Bayern harðlega
Heilsu Musiala hrakaði í sumar þegar hann hneig ítrekað niður á vellinum. Í kjölfarið kom í ljós að hann væri með svokallað störuflog og hefur Bayern síðan leitað leiða til að hjálpa honum að ná tökum á vandanum án þess að það komi niður á heilsu hans eða frammistöðu inni á vellinum.
Musiala skrifaði undir nýjan samning við Bayern fyrir ekki svo löngu síðan og er talið að hann þéni um 25 milljónir evra á ári.
Launin eru nú orðin að ágreiningsefni innan stjórnar félagsins, þar sem sumir stjórnarmenn telja þau ekki lengur réttlætanleg í ljósi heilsufarsvandamála hans. Bayern hefur þó ekki rætt við Musiala eða umboðsmann hans um mögulegar breytingar á samningnum.
Þess í stað hafa stjórnarmennirnir Karl-Heinz Rummenigge, Uli Hoeness og Jan-Christian Dreesen ákveðið að nota fjölmiðla til að þrýsta á Musiala að samþykkja launalækkun, í stað þess að ræða málið beint við hann og teymi hans.
Framkoma Bayern hefur vakið mikla reiði og hafa ýmsir þekktir einstaklingar úr fótboltaheiminum gagnrýnt félagið, þar á meðal Lothar Matthaus, fyrrum leikmaður Bayern og þýska landsliðsins.
Rio Ferdinand hefur nú bæst í þann hóp og segir meðferðina á Musiala vera félaginu til skammar.
„Bayern er betra félag en þetta. Ef félagið vill endursemja um launin hans Jamal vegna heilsufarsvandamála hans, þannig að samningurinn henti félaginu betur til framtíðar, þá á það auðvitað að ræða við hann og teymi hans. Ekki fara með þetta í fjölmiðla.“
„Þetta hlýtur að vera nógu erfitt fyrir Jamal nú þegar, þótt hann þurfi ekki líka að horfa upp á fjölmiðla og stjórnarmenn félagsins ræða þetta opinberlega.“
„Bayern hefur alltaf verið eitt af þessum félögum sem fólk dáist að fyrir fagmennsku og hvernig það heldur á sínum málum. Það sem er að gerast núna er því miður alls ekki í anda Bayern,“ sagði Ferdinand á X.
Alþjóðlegu leikmannasamtökin FIFPRO hafa einnig gagnrýnt Bayern harðlega og segja umræðuna um Musiala ekki vera neinum til góðs. Samtökin hafa lýst yfir fullum stuðningi við leikmanninn og minna á að félaginu beri að standa við þann samning sem það gerði við hann.
FIFPRO bendir jafnframt á að heilsufarsvandamál, meiðsli eða slakt gengi gefi félagi ekki sjálfkrafa rétt til að breyta samningskjörum leikmanns, rétt eins og frábær frammistaða gefi leikmanni ekki sjálfkrafa rétt á launahækkun.
„FIFPRO stendur með Jamal Musiala og öllum þeim leikmönnum sem standa við sínar samningsbundnu skuldbindingar. Við ætlumst til þess að vinnuveitendur þeirra geri slíkt hið sama,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu leikmannasamtakanna.