Fotbolti.net
08.10.26 - 16:25
Elvar Geir Magnússon

Xhaka fékk skilorðsbundna sekt vegna Covid vottorðsins

Granit Xhaka er fyrirliði Sunderland.

Granit Xhaka er fyrirliði Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Granit Xhaka, fyrirliði Sunderland, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist hafa verið dæmdur fyrir að framvísa fölsuðu bólusetningarvottorði árið 2022.

Dómurinn er skilorðsbundinn en hljóðar upp á 150 þúsund svissneska franka eða um 22 milljónir íslenskra króna í sekt ef hann gerist brotlegur á næstu tveimur árum.

„Eins og ég sagði fyrir nokkrum vikum þá tek ég ábyrgð á mistökum mínum," segir Xhaka sem dró sig út úr svissneska landsliðshópnum vegna málsins.
Xhaka fékk falsað Covid vottorð því hann treysti ekki bólusetningum
TENGT EFNI

Xhaka fékk falsað Covid vottorð því hann treysti ekki bólusetningum

Xhaka lét ekki bólusetja sig gegn Covid veirunni á sínum tíma þar sem hann var með efasemdir um bólusetningar.

„Ég var með vantraust á bóluefnið og var hrjáður af ótta og óvissu. Í þessu ólgusama tilfinningaástandi fékk ég falsað bólusetningarvottorð í stað þess að játa efasemdir mínar. Í dag sé ég greinilega að þetta var ekki rétta leiðin. Þetta voru mistök og ég biðst afsökunar," sagði Xhaka þegar málið kom í fjölmiðla.
Xhaka fékk skilorðsbundna sekt vegna Covid vottorðsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.