Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. nóvember 2020 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gabriel Jesus: Ekki góð úrslit fyrir okkur
Mynd: Getty Images
Gabriel Jesus skoraði mark Manchester City þegar liðið gerði jafntefli við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta var flottur fótboltaleikur. Við vitum að þeir leggja mikið á sig og eru með marga stórkostlega leikmenn. Við fengum tækifæri til að vinna leikinn," sagði Jesus.

„Bæði lið vildu vinna. Stundum þegar það er þannig, þá þarftu að hafa meiri stjórn á boltanum. Við verðum að halda áfram svona og reyna að nýta færi okkar betur."

„Við erum að spila á heimavelli og við verðum að vinna leikina okkar hérna. Úrslitin eru ekki góð fyrir okkur og kannski eru þau góð fyrir þá."

Jesus sagði í samtali við BBC að þetta tímabil væri hættulegt fyrir leikmenn því það væru svo margir leikir á stuttu tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner