Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Niðurtalningin - Nýir tímar í Laugardalnum
Niðurtalningin - Hamingjan er í Víkinni
Hugarburðarbolti Þáttur 12
Niðurtalningin - Andinn á Sauðárkróki er einstakur
Enski boltinn - Er titilbaráttan bara búin?
Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki
Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli
Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
Hugarburðarbolti Þáttur 11
Mögnuð saga Diljár - Næstum hætt en ætlar nú á EM með Íslandi
Útvarpsþátturinn - Besti upphitunarþátturinn
Niðurtalningin - Gylfi Sig mættur á Hlíðarenda
Niðurtalningin - Bara ein leið til að toppa síðasta tímabil
Hugarburðarbolti Þáttur 10
Enski boltinn - Ekki bara bestu kaup tímabilsins
Niðurtalningin - Ungu strákarnir þekkja ekkert annað
Niðurtalningin - Höfðinginn og Sörens hlæja að spánni
   mán 08. nóvember 2021 12:32
Elvar Geir Magnússon
Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka
Icelandair
Davíð Snorri Jónasson.
Davíð Snorri Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 liðið lék afar vel gegn Portúgal.
U21 liðið lék afar vel gegn Portúgal.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jafntefli varð niðurstaðan þegar Ísland og Grikkland mættust hér á landi.
Jafntefli varð niðurstaðan þegar Ísland og Grikkland mættust hér á landi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Þórðarson.
Kolbeinn Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023.

Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.

Sjá einnig:
U21 landsliðshópurinn

„Það er alltaf krefjandi að setja saman landsliðshóp, við eigum efnilega stráka. Hópurinn er flottur og ég er mjög sáttur með hann," segir Davíð. Óvenju margir í A-landsliðinu eru á U21 aldri vegna þeirra kynslóðaskipta sem þar eru í gangi.

„Vissulega er það staða sem hefur ekki sést lengi í íslenska landsliðsumhverfinu. Það er bara frábært þegar menn geta stigið skrefið upp í A-landsliðið, þar með opnast tækifæri fyrir aðra að sýna sig. Þeir sem hafa verið að undanförnu í U21 landsliðinu hafa svo sannarlega staðið sig vel og ég er búinn að vera ánægður með fyrstu leikina og fyrstu gluggana hjá liðinu."

Aldursbilið er óvenju breitt í U21 landsliðinu núna. „Við erum með blöndu af leikmönnum sem eru fæddir 2000 og alveg niður í 2004. Við erum með tvo stráka sem eru fæddir 2004 og það er lengra aldursbil milli leikmanna en oft áður," segir Davíð.

Stórkostlegir á köflum
Ísland er með fjögur stig eftir þrjá leiki í riðlinum. Í október tapaði liðið naumlega 0-1 fyrir gríðarlega sterku liði Portúgals. Ísland fékk svo sannarlega tækifæri til að fá eitthvað úr þeim leik og niðurstaðan svekkjandi.

„Það var frábær leikur. Maður var rosalega sár og svekktur yfir því að hafa tapað leiknum því frammistaðan var virkilega góð. Þegar maður fer að líta á leikinn aftur er ég ofboðslega stoltur af liðinu. Við lögðum upp með ákveðið leikplan sem gekk mjög vel. Við komum þeim í vandræði og fengum færi til að skora, við vorum á köflum stórkostlegir og frammistaðan og viðmiðið sem við settum er eitthvað til að vinna áfram með. Við höfum verið betri með hverjum leiknum," segir Davíð.

„Þessi hópur kom beint saman þremur dögum fyrir fyrsta leik í Hvíta-Rússlandi og það var enginn undirbúningur fyrir. Ég er rosalega ánægður með einbeitinguna í hópnum, það er létt yfir okkur en að sama skapi góð einbeiting. Verkefnið í þessum glugga er bara að halda áfram að bæta í."

Hvernig metur hann möguleikana í þessum riðli, er ekki allt galopið?

„Mér finnst það. Fyrirfram þá skoðaði ég aftur í tímann, þegar þessir árgangar voru í U19 landsliðinu, og ég held að þetta verði áfram galopið og jafnir leikir. Portúgalarnir eru og eiga að vera sterkastir í þessum riðli. Þeir eiga að fara í gegn en svo koma jöfn lið þar á eftir. Liechtenstein hefur farið illa af stað en annars hafa leikirnir í riðlinum verið mjög jafnir. Það eru krefjandi leikir framundan sem er jákvætt fyrir okkur."

Verður hörkuleikur í Grikklandi
Ísland er að fara að mæta ólíkum andstæðingum í þessum glugga, Liechtenstein og Grikklandi.

„Þetta eru ólíkir andstæðingar. Við höfum spilað við Grikki áður og lékum hörkuleik við þá hérna heima (sem endaði 1-1). Eins og áður segir þá hefur Liechtenstein farið illa út úr sínum leikjum en það hafa þó komið kaflar þar sem þeir hafa náð að standa nokkuð góða vörn og geta verið þéttir. Við þurfum að fara í ákveðin svæði og koma boltanum í boxið, við verðum að vera með okkar leik á hreinu. Gegn Grikkjunum voru þeir aðeins með yfirhöndina þegar leikurinn byrjaði en við fundum lausnina. Þetta verður hörkuleikur í Grikklandi," segir Davíð.

„Þetta snýst um að gefa í og bæta okkar leik. Við erum duglegir, þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka. Þetta verður hörkugluggi og við viljum enda árið vel."

Hópurinn hittist í Austurríki á morgun og æfir miðvikudag og fimmtudag. Svo er leikur föstudag og ferðalag til Aþenu á laugardaginn.

Finnst 3-5-2 henta liðinu mjög vel
Í hvaða stöðum er minnsta breiddin, hvar þurfum við að fara að framleiða leikmenn?

„Ef við horfum á hópinn er minna af varnarmönnum að koma, þessum hreinræktuðu hafsentum. Við reynum að spila þetta þannig að við höldum í íslensk gildi og það sem íslensk landslið vilja standa fyrir, svo þurfum við að horfa í hópinn sem við höfum í höndunum og hvernig við komum hæfileikaríkustu leikmönnunum inn á völlinn og spila kerfi kringum það. 3-5-2 hentar vel í þennan mannskap. Þeir hafsentar sem við höfum eru mjög efnilegir og flottir en þar er þó minnsta breiddin," segir Davíð.

Hver er ástæðan fyrir því að hann er að spila 3-5-2 leikkerfi með þennan hóp?

„Ég hef reynt að vera sveigjanlegur á það hvaða kerfi við spilum síðan ég kom inn í þetta landsliðsumhverfi. Með U17 liðinu spilaði ég mörg leikkerfi en reynt að halda sömu hugmyndafræði og áherslum. Sama hvar ég stilli mönnum upp á vellinum. Ég horfði á þennan hóp og taldi að við gætum fengið mikið úr honum gegnum þetta kerfi. Við erum með marga sentera og marga miðjumenn, við spilum hafsentastöðurnar þannig að þeir sem eru kannski að spila bakvörð geta leyst þetta líka. Mér finnst þetta henta mjög vel í þessum hópi."

„Við byrjuðum að 'drilla' þetta gegn Hvíta-Rússlandi og höfum nýtt leikina vel. Við höfum skoðað það sem við gerum vel og það sem við getum gert betur. Við höfum reynt að ýta meira á okkur. Nú erum við búnir með tvo glugga og mér finnst við vera komnir nokkuð langt. En það er alltaf eitthvað sem hægt er að bæta í," segir Davíð.

Hákon tekið miklum framförum
Hinn átján ára Hákon Arnar Haraldsson hefur mikið verið til umfjöllunar að undanförnu, eftir að hann þakkaði fyrir byrjunarliðssæti hjá FCK með því að skora sitt fyrsta mark í dönsku úrvalsdeildinni.

„Hákon er sóknarsinnaður leikmaður sem getur spilað nokkrar stöður, hjá okkur spilar hann framherjann en hann hefur einnig spilað úti á kanti og inni á miðjunni. Hann er nokkuð fjölhæfur. Hann er góður með boltann og teknískur, góður að klára færi. Að auki er hann líka harðduglegur og er alltaf að verða betri og betri taktískt," segir Davíð um Hákon.

„Hann setur oft mjög gott fordæmi fyrir lið, spilar góða vörn og er aggressífur. Hann hefur tekið miklum framförum, sérstaklega síðasta árið. Hann er á mjög skemmtilegri vegferð á sínum ferli og gaman að fylgjast með honum."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner