Kalvin Phillips miðjumaður Leeds United verður frá í einhvern tíma en hann meiddist aftan í læri í 2-2 jafnteflinu gegn Brentford á sunnudag og fór af velli á 55. mínútu.
Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en óttast er að þessi 26 ára enski landsliðsmaður verði lengi frá.
Liam Cooper fór einnig meiddur af velli í leiknum.
Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en óttast er að þessi 26 ára enski landsliðsmaður verði lengi frá.
Liam Cooper fór einnig meiddur af velli í leiknum.
Þá virtist Patrick Bamford finna fyrir einhverjum óþægindum eftir að hann skoraði jöfnunarmarkið gegn Brentford í uppbótartíma.
Sóknarmaðurinn var þá að mæta aftur til leiks eftir þriggja mánaða fjarveru vegna ökklameiðsla.
Leeds er í fimmtánda sæti úrvalsdeildarinnar en liðið á leik gegn Chelsea um komandi helgi.
Athugasemdir