Besta deildin: Framarar á miklu skriði

Framarar hafa unnið sex af síðustu sjö og ekki tapað síðan í apríl

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA 3 - 4 Fram
0-1 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('6 )
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('9 )
2-1 Sveinn Margeir Hauksson ('17 )
2-2 Atli Þór Jónasson ('34 , víti)
2-3 Atli Þór Jónasson ('42 )
2-4 Freyr Sigurðsson ('63 )
3-4 Jóan Símun Edmundsson ('84 )
Lestu um leikinn
0-1 Þorri Stefán Þorbjörnsson ('6 )
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('9 )
2-1 Sveinn Margeir Hauksson ('17 )
2-2 Atli Þór Jónasson ('34 , víti)
2-3 Atli Þór Jónasson ('42 )
2-4 Freyr Sigurðsson ('63 )
3-4 Jóan Símun Edmundsson ('84 )
Lestu um leikinn
Framarar unnu öflugan 4-3 sigur á KA í 10. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í kvöld. Fimm mörk voru skoruð í fyrri hálfleiknum og hafa Framarar unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum.
KA hafði byrjað mótið illa og aðeins náð í þrjá sigra, og tapað síðustu tveimur á meðan Framarar hafa verið á miklu flugi og ekki tapað leik síðan í lok apríl.
Þorri Stefán Þorbjörnsson kom Fram yfir á 6. mínútu er hann skallaði Haralds Einars Ásgrímssonar í netið. Góður snúningur kom á boltann sem fór af stönginni og inn.
Markaskorarinn var síðan sofandi á verðinum nokkrum mínútum síðar. Hann var að dútla með boltann er Oliver Heiðarsson kom á blindu hliðina, pota boltanum til Hallgríms Mar Steingrímssonar sem jafnaði metin.
KA kom boltanum aftur í netið á 11. mínútu er Birgir Baldvinsson náðu að troða honum yfir línuna á fjærstönginni en Elías Ingi Árnason, dómari leiksins, tók markið af við mikla óánægju gestanna.
Áfram héldu KA-menn að sækja og skömmu síðar kom annað markið er Sveinn Margeir Hauksson fékk boltann eftir sendingu Hallgríms og setti boltann framhjá Viktori í markinu.
Framarar náðu að snúa leiknum sér í hag á átta mínútunum. Freyr Sigurðsson fiskaði vítaspyrnu á Birgi á 34. mínútu og jafnaði Atli Þór Jónasson úr spyrnunni áður en hann gerði annað mark sitt undir lok hálfleiksins.
Þeir sundurspiluðu KA áður en Freyr tók skotið en það var varið á línu áður en Atli skoraði.
Fimm mörk í fyrri hálfleik en það var ekki alveg sama markaveislan í þeim síðari.
Framarar voru sterkari og náðu að koma boltanum í netið í fjórða sinn er Freyr skoraði á nærstönginni eftir fyrirgjöf Róberts Haukssonar, sem hafði stolið boltanum af Jakobi Snæ Árnasyni.
KA tókst að gera þetta að leik er Jóan Símun Edmundsson minnkaði muninn niður í eitt mark á 84. mínútu. Hallgrímur fann Jóan sem hamraði honum framjá Viktori.
Lengra komst KA ekki og var það Fram sem fagnaði enn einum sigrinum og eru nú með 23 stig í þriðja sætinu, tveimur stigum frá KR sem er í öðru sæti á meðan KA er í 9. sæti með 10 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 7 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 8 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |